top of page
hafyoga.gif

Næstu námskeið

HAF Yoga (Jóga í vatni):

 

6 vikur
Boðaþingi 5-7 - kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 17:30-18:30.

Kennari Bergþóra

Skráning bessyolafs@gmail.com.
 

6 vikur
Grensáslaug - kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17-18.

Kennari:Steinunn

Skráning: stakanna@gmail.com.

6 vikur

Kennsla í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði.

Kennari: Þórey Ingveldur Guðmundsdóttir.

Skráning: thoreyig@simnet.is

Vertu velkomin í ljúfa og slakandi tíma sem hafa notið aukinna vinsælda síðan við hófum kennslu fyrir 9 árum síðan. Þessi slakandi aðferð nefnist Holistic Aqua Flow eða HAF Yoga.

Nú kennum við í 4 sundlaugum að staðaldri, bjóðum 6 vikna námskeið í senn og erum  með kennaranám á Heilsustofnun í Hveragerði árið 2021 í fimmta sinn.


Við gerum aðlagaðar jógaæfingar að vatni, slökum á í flotbúnaði og hugleiðum í heitum potti í lok tímans. Hreyfing í vatni slakar náttúrulega á vöðvum, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðvavirkni og losar streitu.

Í H.A.F. Yoga vinnum við með yoga (þmt. teygjur, flæðisæfingar, stöður, hugleiðslur og öndun), vatn og hljóð til slökunar á sérstakan hátt.


Engin fyrri reynsla nauðsynleg.

Lestu meira hér til hægri um kennarana.


Allar hafa þær ástundað 200 stunda jóganám í vatni undir handleiðslu Arnbjargar Kristínar Konráðsdóttir ásamt meðkennurum og lært saman jóga í vatni á Heilsustofnun í Hveragerði sl árin.

Við tökum innilega vel á móti ykkur.

Arnbjorg_Omur_Profile.jpg
Screen Shot 2018-08-23 at 10.11.21.png
1902942_10203524374812694_1004240350_n.j

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir

Akureyri

Skráning: hafyoga@gmail.com.

Jógakennari, stofnandi og kennaraþjálfari í H.A.F Yoga / Jóga í vatni.

"Ég hef ástundað jóga nær daglega í 10 ár en hóf jógakennaranám fyrir 9 árum síðan. Jóga, vatn og hljóðheilun er fullkomin streitulosun og endurnærir líkama, huga og sál á umvefjandi hátt í mínu hjarta. Það er djúp og einlæg ánægja að deila H.A.F. Yoga með hópum á námskeiðum og í almenningslaugunum sl 10 ár hérlendis og erlendis.

Bergþóra Ólafsdóttir

Boðaþing

Skráning: bessyolafs@gmail.com / 694-9985.

Viðurkenndur kennari í H.A.F Yoga / Jóga í vatni.

"Ég var full af streitu og stoðvirkjum þegar ég hóf námið, þrátt fyrir allskonar líkamsrækt. Vatnið, núvitundin mjúkar teygjur hugleiðsla og flotið er frábær leið til að heila líkama og sál, sem mig langa að miðla til allra."

Steinunn Anna Kjartansdóttir

Grensáslaug

Skráning: stakanna@gmail.com / 869-2507

Viðurkenndur kennari í H.A.F Yoga / Jóga í vatni. Steinunn Anna er menntaður íþrótta og tómstundafræðingur ásamt því að hafa verið hóptímakennari í líkamsræktargeiranum í mörg ár.

Hún elskar jóga og vatn og hlakka til að vera með ykkur í vetur. Steinunn á GONG að auki núna og kemur af og til með það í tíma.

Þórey Ingveldur Guðmundsdóttir

Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði.

Skráning: thoreyig@simnet.is / 897-9021

Viðurkenndur kennari í H.A.F Yoga / Jóga í vatni. Viðurkenndur kennari í Yoga Nidra.

Hef stundað jóga í vatni ásamt öðru jóga til fjölda ára og tel það flotta leið til að vinna með líkama og sál.

Kennaranám HAF Yoga
Kennaranám HAF Yoga
30. apr. 2022, 08:00
Ómur Yoga & Gongsetur

KENNARANÁM 

HAF YOGA 2019-2020

bottom of page